|
Losaðu þig við aukakílóin á auðveldan og árangursríkan hátt.

Nánari uppl...
Hvernig væri að læra ný viðhorf og breyta um hugarfar í tengslum við mat og líkamann? Allt hefst á hugsun og viðhorfi, og þar stranda líka mörg fögur fyrirheit, þ.e.a.s. ef hugsunin er ekki í samræmi við markmiðið.
Þegar þú hlustar á geisladiskinn Losnað við kílóin, þá nærðu þeim árangri að breyta matarvenjum þínum. Þú endurmenntar undirvitundina og breytir vanahegðun þinni varanlega, og nærð þinni eðlilegu kjörþyngd á þeim tíma sem það tekur líkamann að losna við aukakílóin.
Þessi aðferð tekur tíma, því mjög skyndileg megrun er ekki holl fyrir líkamann og líklegasta afleiðingin yrði að kílóin kæmu fljótt aftur.
Búðu þig undir lífstílsbreytingu sem byrjar innra með þér á meðan þú tekur sjálfan þig í meðferð. Það eina sem þú þarft að gera er að hlusta á diskinn einu sinni á dag í 21 - 30 daga, þannig tryggir þú árangurinn.
Diskurinn Losnað við kílóin byrjar á þægilegri tónlist með djúpslökun til þess að róa huga og líkama. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt ofurnámsferli þar sem þú lærir að virkja mátt ímyndunaraflsins og óbeislaða orku hugans til þess að losa þig við aukakílóin á auðveldan og árangursríkan hátt. Að lokum ert þú leidd hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíld og endurnærð.
Á geisladiskinum eru jákvæðar staðhæfingar, ásamt sefjunarferli með sérstökum dáleiðsluskipunum sem hafa áhrif á undirmeðvitundina og breyta vanahegðun hlustandans. Staðhæfingarnar hjálpa hlustandanum að virkja hugann á jákvæðan hátt, til að bæta líf sitt.
Þessi diskur er tilvalinn fyrir alla þá sem vilja auðvelda sér baráttuna við aukakílóin, vera í góðu formi og lifa heilbrigðu lífi. Bestur árangur næst með því að hlusta daglega á diskinn.
- Útgefandi: Hugbrot
- Þula: Signý Hafsteinsdóttir
- Tónlist: Aðalsteinn Guðmundsson
- Lengd: 30 mín
- Verð: 2.500 kr.
Hef losnað við rúm 60 Kíló…
Síðan ég keypti þessa diska hef ég losnað við rúm 60 Kíló!! (Ekki prentvilla.) Sjálstraustið hefur aukist í samræmi við kílóafjöldann sem hefur fokið, þannig að ég er sátt.
--Kona á landsbyggðinni
Diskurinn er meiriháttar...
Ég keypti mér Megrunardiskinn og hann er meiriháttar, í fyrsta skipti í mörg ár er eitthvað að ganga hjá mér, og ég sef eins og engill! Ég hlusta á hann á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa og reyndar sofna ég alltaf áður en ég næ að hlusta á hann allan.
--Íris Arthúrsdóttir
Ég er léttari í skapi og jákvæðari...
"Ég keypti megrunardiskinn í apríl og fékk hann sendan til USA. Er alveg hugfanginn af þessu og finn hvað ég er léttari í skapi og jákvæðari og auðvelt að fara á æfingar og matur er ekki það sem allt snýst um eins og áður!!!!"
--Elín Ólafsdóttir.
Diskarnir hafa reynst vel...
"Diskarnir hafa reynst vel í endurhæfingunni fyrir krabbameinssjúka."
--Erna Magnúsdóttir, yfiriðjuþálfi, Göngudeild LSH Kópavogi.
Hef lést um 7 kíló...
Ég keypti mér pakka með geisladiskum fyrir áramót. Ég hef verið í vandræðum með sjálfstraust og kílóafjölda síðan ég man eftir mér. Ég hef prófað margar leiðir en ekkert gefið árangur fyrr en ég las bókina og hlustaði á diskinn. Í fyrstu var ég að drepast úr leiðindum að hlusta á diskinn en síðan byrjaði mér að líka betur og betur við hann. Ég veit ekki af hverju en sennilega var það rödd þularins sem gerði mig ánægðan. Eftir um það bil mánuð fór ég að léttast smátt og smátt en það var ekki aðalatriðið heldur breytingin á hugsunarhætti mínum og hegðun. Ég hef nú lést um sjö kíló og á eftir að léttast um tuttugu í viðbót en það kemur bara af sjálfu sér held ég. Mér liggur ekkert á að léttast vegna þess að mér líður miklu betur, er sjálfsöruggari og veit hvenær ég geri rétt og hvenær rangt. Að sjálfsögðu hef ég „dottið í það“ borðað vitlausan mat en ég gefst ekkert upp eins og ég gerði áður fyrr. Auk þess er bókin svo frábær að ég nota þekkingu mína úr henni óspart í samskiptum við annað fólk. Líf mitt hefur gjörbreyst á þremur mánuðum og ég er miklu sáttari við sjálfan mig.
--Hafliði, Svíþjóð
Strax farin að finna breytingar...
"Ég er búin að hlusta á geisladiskinn Losnað við kílóin í hálfan mánuð og ég er strax farin að finna hugarfarslegar breytingar og orðin mun sjálfsöruggari og staðfastari."
--Birna Gunnarsdóttir.
Takk kærlega fyrir mig...
"Haustið 2004 keypti ég diskinn "Losnað við kílóin", hafði reyndar ekki mikla trú á þessari meðferð en þar sem ég er afar nýjungagjörn þá varð ég að prófa enda allt of feit. Hlustaði samviskusamlega í 30 daga, öll hreyfing jókst verulega, nokkur kíló fóru (hafa ekki komið aftur) OG árskortið var notað að meðaltali 2-3 í viku allt árið 2005 sem mér þykir AFREK!!! Takk kærlega fyrir mig."
--Unnur Ósk Kristjónsdóttir
Súper árangur...
"Ég hef reynt megrunarpakkan með SÚPER árangri og kann ég ykkur þakkir fyrir það."
--Sigurður
Mbl. 31 maí 2005 - Hugarfar mitt hefur breyst gríðarlega...
"Nýlega prófaði ég svonefnda "sjálfsdáleiðslu" til að ná mér út úr leiðinda ávana sem ég hef tamið mér og mig langaði til að losna við. Það er mér mikil ánægja að segja frá því að þessi aðferð virðist ætla að bera árangur. A.m.k. hefur hugarfar mitt breyst gríðarlega við aðeins nokkrar hlustanir."
--Svavar Knútur Kristinsson, blaðamaður Mbl.
Þessar aðferðir virka...
"Diskurinn "Losnað við kílóin" hefur gert kraftaverk á mér og minni áður öfgakenndu matarlyst. Hann hefur haft byltingarkennd áhrif á viðhorf mitt gagnvart líkama mínum. Þessar aðferðir sem notaðar eru á diskunum frá Hugbrot - þær virka."
--Sigrún Lilja Einarsdóttir, framhaldsskólakennari
Veit núna að þetta virkar...
"Ég keypti mér megunarpakkan og fékk diskinn Meira sjálfstraust með honum, ég fór strax að hlusta á diskanna og lesa bókina. Núna er ég að hlusta á megrunardiskinn alla daga og kílóin eru að hverfa eitt og eitt en þetta mun taka tíma en ég veit að ég get gert þetta með hjálp diskanna en ég er rúmlega 50 kílóum yfir kjörþyngd. Ég ætla að fá mér fleiri diska frá Hugbrot því núna trúi ég á þetta og veit að þetta virkar."
--23 ára kerfisfræðingur
Skilaði miklum árangri...
"Væntingar mínar til disksins voru að fá hugan með í viðhorfabreytingu í baráttu við aukakílóin. Að öðlast jákvæða sjálfsmynd samtímis með að léttast, í stað þess að sitja uppi grönn á líkama, en feit á sál. Þetta skilaði miklum árangri."
--HIldur
Hef misst fimm kíló...
"Las kynningu um diskinn á doktor.is og fannst mikið til í því sem þar var sagt... og síðan hef ég misst fimm kíló."
--Ársæll
Náði þeim árangri sem ég ætlaði mér...
"Ég keypti diskinn af því ég átti við offituvandamál að stríða og mér var bent á þennan disk, að hann gæti hjálpað mér af því að hugurinn ræður mikið um hvort maður nær árangri eða ekki. Þessi diskur breytti miklu fyrir mig, hann ekki beint breytti hugsuninni en hann hafði mikil áhrif á það að ég náði þeim árangri sem ég ætlaði mér."
--Sara
Þetta hefur aldrei gerst áður...
"Keypti diskinn Losnað við kílóin fyrst til að prufa hvort þetta virkaði og strax daginn eftir fyrsta skiptið borðaði ég helmingi minna af pizzu en venjulega og var ekkert að spá í það fyrr en eftirá að allt í einu var afgangur af pizzunni og mig langaði ekki til að klára hana. Eitthvað sem aldrei hefði gerst áður."
--Guðrún
Ekkert mál að sleppa óhollustu...
"Diskurinn Losnað við kílóin hefur gert það að verkum að mér finnst ekkert mál að sleppa allri óhollustu og ég labba á hverjum degi, hér áður fyrr hefði ég sleppt sumum dögum vegna veðurs en núna hugsa ég bara að ef að veðrið á að hafa áhrif þá get ég alveg eins hætt þessu..ég er s.s. staðfastari í þvi sem að ég er að gera."
--Steinunn
Langar frekar í ávexti en nammi...
"Ég ákvað að kaupa diskinn Losnað við kílóin bara til að prufa hann og á einni viku hef ég losnað við eitt og hálft kíló. Ég borða ekki eins mikið og áður og fann ég það strax og einnig langar mig frekar í ávexti en nammi og sannaðist það í smá partýi sem ég fór í þar sem ég borðaði gulrætur með bestu lyst en snerti ekki súkkulaðið og lakkrísinn sem var fyrir framan mig."
--Bryndís
|