|
Auktu sjálfsöryggið og byggðu upp sterka og heilbrigða sjálfsímynd.
Nánari uppl...
Meira sjálfstraust byrjar á þægilegri tónlist með djúpslökun til þess að róa huga og líkama. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt ofurnámsferli þar sem þú lærir að nýta mátt ímyndunaraflsins og virkja óbeislaða orku hugans til þess að byggja upp jákvæða og heilbrigða sjálfsímynd og efla um leið sjálfstraust og sjálfsöryggi. Að lokum ert þú leidd hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíld og endurnærð.
Þessi diskur er tilvalinn fyrir alla þá sem vilja efla hugrekki og vera sterkari og ákveðnari í samskiptum við annað fólk.
- Útgefandi: Hugbrot
- Þula: Signý Hafsteinsdóttir
- Tónlist: Aðalsteinn Guðmundsson
- Lengd: 30 mín
- Verð: 2.500 kr.
Kom mér mikið á óvart...
Ég keypti mér megunarpakkan og fékk diskinn Meira sjálfstraust með honum, ég fór strax að hlusta á diskanna og lesa bókina. Ég hef alltaf talið sjálfan mig hafa gott sjálftraust en ég varð mjög fljótt var við að það hefði aukist og kom það mér mikið á óvart þar sem ég hafði alls ekki trúað á þetta áður en ég keypti þetta.
--Ingvar
Ótrúlegt hvað hann hefur gert mikið fyrir mig...
Ég hef aðallega hlustað á diskinn Meira Sjálfstraust, það er alveg ótrúlegt hvað hann hefur gert mikið fyrir mig. Mæli hiklaust með diskunum.
--Edda Jónsdóttir
|