|
Árangursrík aðferð fyrir fólk sem þarf hafa hugann og einbeitinguna í lagi, og vill að ná því allra besta út úr sjálfu sér.

Nánari uppl...
Betri einbeiting byrjar á þægilegri tónlist með djúpslökun til þess að róa huga og líkama. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt ofurnámsferli þar sem þú lærir að nýta mátt ímyndunaraflsins og virkja óbeislaða orku hugans til þess að tileinka þér nýja vana og viðhorf sem efla einbeitingu og stjórnun athyglinnar. Að lokum ert þú leidd hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíld og endurnærð. Bestur árangur næst með því að hlusta daglega á diskinn.
Þessi diskur er tilvalinn fyrir alla þá sem vilja margfalda námsárangur og vitsmunaleg afköst.
- Útgefandi: Hugbrot
- Þula: Signý Hafsteinsdóttir
- Tónlist: Aðalsteinn Guðmundsson
- Lengd: 30 mín
- Verð: 2.500 kr.
Hef aldrei áður náð að afkasta svona miklu...
Ég keypti mér diskinn Betri einbeiting um miðjan oktober í fyrra, þá var ég að reyna við hinn alræmda clausus í læknadeild við HÍ. Ég var komin í algjört stresskast og átti erfitt með að einbeita mér og var að missa alla trú á sjálfa mig um að ég gæti þetta. Ég flaug í gegnum síuna og hef aldrei áður náð að afkasta svona miklu. Ég er ekki viss um að ég væri nemi við læknadeid HÍ í dag ef ég hefði ekki keypt diskinn.
--D.B.
 |