|
Byggðu upp fjárhagslegt sjálfstæði og njóttu velgengni í fjármálum þínum.
Auðlegð og velmegun byrjar á þægilegri tónlist með djúpslökun til þess að róa huga og líkama. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt ofurnámsferli þar sem þú lærir að nýta mátt ímyndunaraflsins og virkja óbeislaða orku hugans til þess að efla fjárhagslegt sjálfstæði og velgengni í fjármálum. Að lokum ert þú leidd hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíld og endurnærð.
Þessi diskur er tilvalinn fyrir fólk sem vill vera sinn eigin herra, stjórna tekjum sínum og vera í starfi sem það hefur ánægju af.
- Útgefandi: Hugbrot
- Þula: Signý Hafsteinsdóttir
- Tónlist: Aðalsteinn Guðmundsson
- Lengd: 30 mín
- Verð: 2.500 kr.
Er svo sannarlega að uppskera fjárhagslega...
Í byrjun desember 2002 keypti ég mér diskinn Auðlegð & Velmegun. Ég hlusta á diskinn á kvöldin áður en ég fer að sofa og áhrifin hafa sko ekki látið á sér standa. Ég er afslappaðri, ánægðari og hamingjusamari en ég hef nokkru sinni verið, afköstin í vinnunni eru ótrúleg og ég er svo sannarlega að uppskera fjárhagslega. Ég mæli hiklaust með diskinum því líf mitt hefur tekið yndislega stefnu í átt að andlegu og fjárhagslegu jafnvægi.
--Adda Hafborg Hálfdánsdóttir, Sjálfstæður atvinnurekandi
 |