|
Hvatningarorð fyrir lífið |
|
|
|
|
Fáðu meiri jákvæðni, uppörvun, hvatningu og hrós inn í líf þitt.
Hvatningarorð byrjar á þægilegum öldunið með tvíómabylgjum sem hafa sjálfkrafa róandi áhrif á líkams- og hugarstarfssemina. Diskurinn leiðir hlustandann síðan hægt og rólega inn í sérstakt sjálfstyrkingarferli sem virkjar mátt ímyndunaraflsins og óbeislaða orku hugans til þess að sigrast á neikvæðri gagnrýni, byggja upp jákvæða sjálfsmynd og sjálfstal og auka ánægju, gleði og hamingju. Að lokum er hlustandinn leiddur hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíldur og endurnærður.
Þessi diskur er tilvalinn fyrir alla sem vilja peppa sig upp, auka jákvæðni og bjartsýni og fjölga sólskinsstundum í lífi sínu.
- Útgefandi: Hugbrot
- Þula: Signý Hafsteinsdóttir
- Tónlist: Aðalsteinn Guðmundsson
- Lengd: 30 mín
- Verð: 2.500 kr.
Þeir eru að virka...
Ég hef notað Hvatningarorð fyrir börnin á skóladagheimilinu og það gafst vel. Mér var gefin diskurinn betri svefn og síðan er ég búinn að kaupa þá í gjafir það hefur gert lukku. Ég nota mest hvatningarorð. Það er vel lesið inn á þá og þeir eru að virka.
--Sigurbjörg Ólasfdóttir
 |